Spurt & svarað
Spurt & svarað
Hver getur sótt um?+
Öll sem eru til í að hitta nýtt fólk fyrir framan myndavél. Þú getur sótt um sem þátttakandinn sem velur eða sem eitt af tíu mögulegum deitum — við pörum saman þátttakendur eftir umsóknum.
Er aldurstakmark?+
Já. Þátttakendur þurfa að vera 18 ára eða eldri. Þátttaka er eingöngu fyrir einstaklinga 18 ára og eldri. Samþykki foreldris eða forráðamanns breytir ekki aldurstakmarkinu.
Hvað gerist eftir að ég sæki um?+
Umsóknin fer beint til framleiðslunnar. Við förum yfir allar umsóknir og höfum samband við þau sem komast áfram í spjall og prufur.
Þarf ég að vera fyndin/n eða með reynslu?+
Nei. Þú þarft bara að vera þú sjálf/ur og til í að hafa gaman. Það virkar alltaf best.
Hvað gerist eftir þáttinn?+
Í lok þáttarins velur þátttakandinn einn einstakling. Þau fara síðan á stefnumót síðar, en stefnumótið verður ekki tekið upp af tökuliði þáttarins. Þau deila sjálf efni frá stefnumótinu á samfélagsmiðlum.
Er allt tekið upp?+
Þátturinn sjálfur er tekinn upp og birtur á samfélagsmiðlum og streymi. Þú samþykkir upptöku og birtingu þegar þú sendir inn umsókn.
Hvar og hvenær eru tökur?+
Tökur fara fram á höfuðborgarsvæðinu. Við sendum nákvæma dagsetningu og staðsetningu á þau sem eru valin.
Get ég dregið umsóknina til baka?+
Að sjálfsögðu. Sendu okkur línu á skraningar@funguys.is og við eyðum upplýsingunum þínum.